Hálkublettir eru á Hellisheiði og hálka á Mosfellsheiði en annars eru vegir að mestu greiðfærir á Suðurlandi. Á Vesturlandi er Hálka á Holtavörðuheiði og hálkublettir á Bröttubrekku og Fróðárheiði.
Á Vestfjörðum er sumsstaðar krap, snjóþekja og hálkublettir á fjallvegum. Ófært og óveður er á Steingrímsfjarðarheiði og ófært er norður í Árneshrepp á Ströndum. Hálkublettir eru í Súganda- og Önundarfirði.
Vegir eru mikið til auðir á Norðurlandi. Krapi er þó á Dettifossvegi en hálkublettir á Hólasandi.
Hálkublettir eru á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og eins á Vopnafjarðarheiði.
Á Austurlandi eru sumsstaðar hálkublettir, s.s. á Jökulsárhlíð, Hróarstunguvegi, Vatnskarði eystra og Breiðdalsheiði. Greiðfært er með suðausturströndinni.
Nú þegar frost er að fara úr jörð þarf víða að banna allan akstur á hálendinu til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru. Þeir sem hyggja á fjallaferðir eru beðnir að kynna sér ástand á viðkomandi leiðum og virða akstursbann þar sem það er í gildi. Sjá nánar hér
Vegna aurbleytu og/eða hættu á slitlagsskemmdum þarf sumsstaðar að takmarka ásþunga. Frekari upplýsingar má sjá með að því að smella hér eða í síma 1777.
Vegna vinnu við endurnýjun á rafkerfum í Múlagöngum má búast við umferðartöfum þar yfir nóttina, frá kl. 21:00 til kl. 06:00 að morgni. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar og virða hraðatakmarkanir meðan á framkvæmdum stendur.
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.