Þrír ökumenn voru handteknir, grunaðir um ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Voru þeir allir látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku. Þá var einn ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Í bifreiðinni voru fjórir farþegar auk ökumanns og fundust fíkniefni á þeim öllum við leit. Einnig fundust fíkniefni í bifreiðinni og voru þeir allir vistaðir í fangageymslu þar til skýrsla verður tekin af þeim.