Fólks bíll og rúta rákust saman á Þingvallavegi um kl. hálf fjögur í dag með þeim afleiðingum að fólksbíllinn hafnaði utan vegar. Einn var fluttur á slysadeild Landspítalans til skoðunar en enginn slasaðist alvarlega.
Samkvæmt upplýsingum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varð slysið vegna slæmra aðstæðna á veginum. Hált er víða og krapi á vegum.