Lítil gassprenging varð í líkamsræktarstöðinni World Class í Laugum í dag. Sprengingin varð þegar starfsmaður ætlaði að kveikja upp í arni á spa-svæði líkamsræktarstöðvarinnar en arinninn gengur fyrir gasi.
Að sögn slökkviliðs var einn starfsmaður sendur á spítala með minniháttar brunasár. Störf slökkviliðs gengu auðveldlega fyrir sig og var öllum störfum þeirra lokið stuttu fyrir hádegi.