Þrátt fyrir hryssingslegt veður á höfuðborgarsvæðinu í dag létu margir sig hafa það að reka út nefið og fá sér ferskt loft, sumir dúðaðir í hlífðarföt en aðrir uppdubbaðir í kjólföt með kúluhatt.
Samkvæmt Veðurstofu Íslands verður áfram suðvestanátt með 8-13 metrum á sekúndu en 10-15 m/s í éljum. Má því áfram má eiga von á nokkrum hryðjum fram eftir degi á morgun, því ekki dregur úr vindi fyrr en síðdegis. Hiti verður 0 til 4 stig.