Á þriðja tug ökumanna var gripinn við að aka of hratt í Ísafjarðardjúpi í dag að sögn vaktmanns lögreglunnar á Ísafirði. Fjöldi manns hélt suður eftir að rokkhátíðinni Aldrei fór ég suður lauk í dag.
Hátíðin þótti takast vel þó upp hafi komið þrjú fíkniefnamál auk þess sem urðu minniháttar stimpingar sem lögregla þurfti að hafa afskipti af.