Í dag er síðasti vetrardagur og því mjög viðeigandi að hitinn fari víða yfir tíu stig á landinu í dag. Veðurstofan spáir 7-15 stiga hita í dag. Sjá allt um veðrið á veðurvef mbl.is.
Spá dagsins er þessi: austanátt, víða 5-13 m/s, en 15-20 syðst í dag. Bjartviðri norðantil á landinu. Skýjað með köflum syðra og lítilsháttar rigning seinni partinn. Hiti 7 til 15 stig að deginum.
Á morgun er svo sumardagurinn fyrsti. Þá er einnig spáð sæmilegum hita, svona miðað við árstíma eða 7-13 stigum.
Spá morgundagsins er annars þessi: Austan og suðaustan 3-10 m/s. Víða bjartviðri á norðanverðu landinu, annars skýjað og dálítil rigning á Suður- og Suðausturlandi. Hiti 7 til 13 stig.
Á föstudag:
Vestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og rigning með köflum, en úrkomulítið austanlands. Hiti 3 til 10 stig.
Á laugardag:
Norðvestan 3-8 m/s. Bjartviðri á S- og A-landi, en lítilsháttar rigning eða slydda NV-til. Hiti 2 til 12 stig, hlýjast syðst.
Á sunnudag:
Norðanátt og dálitlar skúrir eða él, en þurrt og bjart suðvestanlands. Kólnandi veður.
Á mánudag:
Norðanátt og dálítil él austantil og einnig syðst á landinu, en léttskýjað suðvestanlands. Hiti 0 til 5 stig að deginum syðra, annars um eða undir frostmarki.
Á þriðjudag:
Norðanátt og snjókoma eða él, einkum austanlands, en þurrt suðvestantil. Kalt í veðri.