Svínabændur hafna fullyrðingum um lögbrot

mbl.is/Helgi Bjarnason

Svínaræktarfélag Íslands hefur sent frá sér tilkynningu í kjölfar frétta RÚV í gær um að grísir séu geltir ólöglega á Íslandi, án deyfingar. Í fréttum RÚV kom fram að yfirdýralæknir hefði gefið bændum frest fram að áramótum til þess að framfylgja banninu.

Sigurbjörg Daðadóttir, yfirdýralæknir, sagði í samtali við fréttastofu RÚV að þær geldingar sem tíðkast á íslenskum svínabúum væru í raun ólöglegar og að gelding án deyfingar ylli  grísum miklum sársauka.

Þá hefur formaður Dýraverndunarsambands Íslands hvatt fólk til þess að sniðganga íslenskt svínakjöt þar til bændur hætta að gelda grísi án deyfingar. 

Segjast vinna að því að uppfylla lög

Í tilkynningu frá Svínaræktarfélaginu segir að félagið hafni fullyrðingum RÚV um að bændur  séu að brjóta lög. Þeir séu að vinna að því, í samstarfi við stjórnvöld, að uppfylla ákvæði laga um geldingar á grísum. Þá séu svínabændur að vinna að heilum hug að innleiðingu nýrra og framsækinna laga um velferð dýra í samráði við stjórnvöld. 

Svínabændur segja að það sé markmið þeirra að bjóða uppá afurðir sem uppfylla ýtrustu kröfur um gæði, velferð og aðbúnað, á sem hagstæðustu verði. 

Tilkynningin í heild sinni:

Vegna frétta Ríkisútvarpsins í gærkvöldi vilja svínabændur koma því á framfæri að þeir vinna að heilum hug, í samstarfi við stjórnvöld, að innleiðingu nýrra og framsækinna laga um velferð dýra. Þegar innleiðingu þeirra laga lýkur mun aðbúnaður og velferð íslenskra svína verða með því sem best gerist í heiminum. Íslenskur svínabúskapur hefur nú þegar þá sérstöðu að nær engin lyf eru notuð í búgreininni, nema í algjörum undantekningartilfellum.

Svínabændur hafna fullyrðingum fréttastofu Ríkisútvarpsins þess efnis að stundaðar séu ólöglegar geldingar á grísum á íslenskum svínabúum. Með hinum nýju lögum hafi reglur um geldingar á grísum verið hertar verulega frá því sem verið hefur.  Ákvæði íslenskra laga um geldingar og framkvæmd þeirra með þeim ströngustu sem þekkjast.  Því hafa íslenskir svínabændur þurft að þróa aðferðir sem best henta til þess að uppfylla ákvæði laganna. Svínabændur vinna nú að því í samstarfi við stjórnvöld að þróa slíkar aðferðir. Af þeim ástæðum hafa stjórnvöld veitt svínabændum svigrúm til þess að mögulegt verði að uppfylla skilyrði laganna. Fullyrðingar fréttastofu Ríkisútvarpsins um að íslenskir svínabændur stundi lögbrot eru því rangar, í besta falli afar langsóttar.

Svínabændur benda á að hin nýju lög um velferð dýra tóku gildi um síðustu áramót. Lögin ganga mun lengra en sambærileg löggjöf í flestum þeim löndum sem við berum okkur saman við eða flytjum inn svínaafurðir frá. Það er því töluverð áskorun fyrir bæði stjórnvöld og bændur að innleiða þau.  Hafa reglugerðir sem til stendur að setja með stoð í hinum nýju lögum raunar enn ekki tekið gildi.

Svínabændum er mikið í mun að innleiðingin laga og reglna á þessu sviði takist vel og hafa þeir af þeirri ástæðu farið þess á leit við landbúnaðarráðherra að erlendur sérfræðingur verði fenginn til þess að gera úttekt á íslenskum svínabúum, með hliðsjón af gildistöku nýju laganna, og til að veita ráðgjöf um nauðsynlegar úrbætur. Á næstu árum er því ljóst að miklar breytingar munu verða í íslenskum svínabúum sem miða að aukinni velferð og bættum aðbúnaði svína. Þá hafa svínabændur einnig kallað eftir afstöðu ráðherra til þess hvort ekki sé ástæða til að gera sömu kröfur um velferð vegna þeirra þeirra svínafurða sem fluttar eru hingað til lands frá öðrum löndum og gerðar eru samkvæmt íslenskum lögum.

Það er markmið íslenskra svínabænda að bjóða upp á svínaafurðir sem uppfylla ýtrustu kröfur er varðar gæði, velferð og aðbúnað á eins hagstæðu verði og kostur er fyrir íslenska neytendur.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert