Svona mun ný brú yfir Jökulsá líta út

Tölvuteikning af brúnni. Úr myndskeiðinu.
Tölvuteikning af brúnni. Úr myndskeiðinu. mynd/Vegagerðin

Vegagerðin hefur birt myndskeið sem sýnir hvernig ný brú yfir Jökulsá á Fjöllum komi til með að líta út. Stefnt er að því að bjóða út byggingu brúarinnar í haust þanig að framkvæmdir gætu hafist næsta vor. Þá er stefnt að því að framkvæmdunum myndi ljúka árið 2016.

Fram kemur á vef Vegagerðarinnar, að hönnun og annar undirbúningur brúarinnar sé langt kominn en kostnaður sé áætlaður ríflega einn milljarður króna í heild. Gamla brúin sé komin til ára sinna og burðarþolið lélegt. Tekið er fram, að eitt af markmiðum framkvæmdarinnar sé að tryggja þungaflutninga og greiðar samgöngur á milli Norður- og Austurlands auk þess að auka umferðaröryggi.

Gamla brúin fær að standa en óheimilt verður að aka yfir hana eftir að nýja brúin er risin, en hún mun nýtast gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert