Meirihluti myndaður í Hafnarfirði

Hafnarfjörður Hamarinn Hafnarfirði fasteignir Íbúðalánasjóður fasteign íbúðir hús
Hafnarfjörður Hamarinn Hafnarfirði fasteignir Íbúðalánasjóður fasteign íbúðir hús mbl.is/Sigurður Bogi

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar í Hafnarfirði hafa náð samkomulagi um meirihlutamyndun og verkaskiptingu í nýrri bæjarstjórn.

Starf bæjarstjóra verður auglýst laust til umsóknar en Guðlaug Kristjánsdóttir verður forseti bæjarstjórnar og Rósa Guðbjartsdóttir formaður bæjarráðs.

Málefnasamningur um meirihlutastarfið er í burðarliðnum og stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir strax eftir helgi.

Í fréttatilkynningu segir að rík áhersla sé lögð á jafna verkaskiptingu og virkt samstarf allrar bæjarstjórnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert