Hlaut opið ökklabrot í Herjólfsdal

Björgunarsveitarmenn Landsbjargar.
Björgunarsveitarmenn Landsbjargar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Björgunarfélag Vestmannaeyja hefur verið kallað út vegna slasaðrar göngukonu í hlíðinni ofan Herjólfsdals. Konan var á fjölfarinni gönguleið þegar hún hrasaði og hlaut við það opið ökklabrot. 

Björgunarsveitin er nú að búa um hana í börum og að því loknu verður hún borin niður í dalinn þar sem sjúkrabíll bíður þess að flytja hana á Heilbrigðisstofnunina í Vestmannaeyjum, samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert