Ísland styður friðaráætlun í Úkraínu

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.

Utanríkisráðherra segir íslensk stjórnvöld styðja friðaráætlunina sem sé mikilvægur grundvöllur þess að ofbeldi í austurhluta Úkraínu verði stöðvað. Hann segir áætlunina staðfesta að Poroshenko forseti leggi höfuðáherslu á að tryggja frið og öryggi fyrir alla íbúa landsins.

Gunnar Bragi Sveinsson fagnar því að Petro Poroshenko, forseti Úkraínu, hafi lagt fram áætlun um hvernig stilla megi til friðar í landinu. Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins.

Íslensk stjórnvöld skora á alla hlutaðeigandi málsaðila í Úkraínu að styðja friðaráætlunina og virða ákvæði hennar þegar í stað. Í því sambandi er yfirlýstur stuðningur rússneskra stjórnvalda við áætlunina mikilvægt skref, sem og tilkynning forseta Rússlands um að hann hafi farið fram á það við rússneska þingið að það afturkalli heimild til hernaðaríhlutunar í Úkraínu.  

„Það er afar brýnt að friðaráætlunin nái fram að ganga þannig að úkraínsk stjórnvöld geti unnið að nauðsynlegum umbótum í efnahagsmálum og að þeim stjórnkerfisbreytingum sem forsetinn hefur boðað. Á fundum mínum í Kænugarði í mars undirstrikaði ég mikilvægi þess að leita allra leiða til að tryggja friðsamlega lausn á deilunum í landinu. Ég lagði líka sérstaka áherslu á lýðræðisþróun, hversu áríðandi það er að virða mannréttindi, að réttur allra þjóðarbrota í landinu sé tryggður og að efnahagslíf Úkraínu verði endurreist til hagsbóta fyrir alla landsmenn,“ segir Gunnar Bragi.  

Hann segir Ísland leggja sitt af mörkum til að róa öldurnar í Úkraínu með framlagi til eftirlitsverkefnis Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Hann segir mikilvægt að tryggja óhindraða starfsemi ÖSE og annarra alþjóðastofnana í landinu og það sé forkastanlegt að eftirlitsfólki á vegum ÖSE sé enn haldið í gíslingu í austurhluta landsins. Hann skorar á þau öfl sem standa að baki gíslatökum að leysa alla einstaklinga úr haldi þegar í stað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert