Íbúðabyggð ekki útilokuð

Gert er ráð fyrir allt að 500 íbúðum í Skeifunni …
Gert er ráð fyrir allt að 500 íbúðum í Skeifunni í aðalskipulagi. Skjáskot af aðalskipulagi 2010-2030

„Það er ekkert óeðlilegt í kjölfar svona áfalls að menn skoði hvaða möguleikar eru í stöðunni,“ segir Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, en heimild er fyrir byggingu allt að 500 íbúða í Skeifunni í aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030.

Ólöf segir ekki ljóst hvað áætlað sé að verði um húsið í Skeifunni 11 samkvæmt aðalskipulagi, enda snúi það einungis að stærri svæðum sem heild. Deiliskipulag sé hins vegar notað þegar skoðaðar eru einstaka lóðir og afmarkaðri svæði. Hún segir þó ljóst að möguleikinn á íbúðabyggð sé inni í myndinni þegar kemur að gerð nýs deiliskipulags.

„Ef óskað væri eftir því að við byggjum til deiliskipulag yrði það byggt á aðalskipulagi. Nýlundan í því er sú að nú má hafa þarna íbúðir, sem ekki mátti fyrir samþykkt aðalskipulagsins. Það er því ákveðinn hvati fyrir uppbyggingu á svæðinu,“ segir Ólöf.

Verkefni um framtíð í húsagerð

Verkefnið Hæg breytileg átt hefur undanfarið verið rekið í samstarfi borgarinnar, ríkis og fleiri aðila, en þar hafa einstaklingar úr ýmsum áttum unnið í hópum við að skoða mögulegar húsagerðir framtíðarinnar í borginni.

„Nokkrir hópar voru valdir, en þeir völdu sér ákveðin svæði í borginni, skoðuðu hvernig þau gætu þróast og um hvernig íbúðir gæti verið að ræða. Einn þessara hópa valdi sér einmitt Skeifuna,“ segir Ólöf.

Í umfjöllun mbl.is um málið bentu talsmenn hópsins m.a. á það að ýmislegt vinni með Skeifunni, ekki síst sú staðreynd að hún er staðsett nokkurn veginn í landfræðilegri miðju Reykjavíkur. „Draum­ur­inn er að þarna yrði líf­leg byggð með menn­ing­ar­starf­semi, kaffi­hús­um eða bör­um, og um leið væri bú­inn til nýr miðpunkt­ur fyr­ir t.d. Lang­holts­hverfið og Bú­staðahverfið, sem væru þá kom­in í sömu stöðu gagn­vart Skeif­unni eins og Hlíðar og Vest­ur­bær eru með gagn­vart miðbæn­um.“

Sjá fyrri umfjöllun mbl.is: Skeifan verði hverfi með karakter

Á vefsíðu verkefnisins segir að stefnt sé að því „að formgera tillögur sem koma megi í frekari þróun og framkvæmd en meginmarkmiðið sé að út úr verkefninu komi ígrundaðar hugmyndir um íbúða- og búsetukosti sem endurspegli nýja möguleika, viðhorf og væntingar.“

Haldið var málþing í Iðnó þar sem tillögur voru ræddar, en upptöku af kynningum hópa má sjá í meðfylgjandi myndbandi.

Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030

Vefsvæði verkefnisins Hæg breytileg átt

Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs.
Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert