Óviðeigandi að slá blettinn of snemma

Herdeild sláttuvéla í Laugarnesi
Herdeild sláttuvéla í Laugarnesi Ómar Óskarsson

Lögregla höfuðborgarsvæðisins segir á samfélagsmiðlinum Facebook að rétt sé að rifja upp „þá ágætu og almennu reglu hvað varðar garðslátt í íbúðabyggð, en hún er sú að óviðeigandi er slá blettinn mjög snemma á morgnana eða seint á kvöldin.“ Ástæðan er tilkynningar um garðslátt á ókristilegum tíma.

Á facebooksíðunni segir að það sé árviss viðburður að lögreglu berist tilkynningar um garðslátt á ókristilegum tíma. „Þetta sumar er engin undantekning í þeim efnum en snemma í morgun, utan hins hefðbundna fótaferðartíma, hringdi íbúi á höfuðborgarsvæðinu í lögreglu og kvartaði sáran undan hávaða frá sláttuvél.“

Í ljósi ofangreinds segir lögregla tilvalið að vekja sérstaka athygli á 4. gr. lögreglusamþykktar. Í henni segir meðal annars að bannað sé að hafast nokkuð að, sem veldur ónæði eða raskar næturró manna. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður fólk að hafa það ávallt hugfast.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert