Meiri áfengissala í ár

Sala áfengis jókst um 3,8% í lítrum talið fyrstu sex mánuði ársins í samanburði við árið í fyrra.

Á vefsíðu Vínbúðarinnar kemur fram að þegar vöruflokkar eru teknir saman komi í ljós að sala á bjór hafi aukist um 4,4% og á léttvíni um 2,1%. Á sama tíma var samdráttur í sölu á sterku áfengi um 1,1%.

Í einstaka vöruflokkum var sala á rauðvíni og hvítvíni minni á fyrstu sex mánuðum ársins, en sala á lagerbjór jókst um 3,9%.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka