Svara aukinni samkeppni með lækkun

Flugfélagið WOW air auglýsti í gær lækkað verð á flugi til London og bauð verð á þessari flugleið á 5.990 krónur aðra leiðina.

Ástæða þessa lága verðs er aukin samkeppni, en breska flugfélagið easyJet tilkynnti í gær aukin umsvif sín í flugi á milli Íslands og Bretlands, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Algengt verð WOW air á þessari leið er í kringum 13.000 krónur en þessi lágu fargjöld eru í boði á völdum dagsetningum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert