Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að áfrýja til Hæstaréttar tveimur dómum sem féllu í Héraðsdómi Norðurlands eystra í júní, en þá var Akureyrarbær dæmdur brotlegur við uppsögn á tveimur fyrrverandi slökkviliðsmönnum og bærinn jafnframt dæmdur til að greiða milljónir í skaðabætur.
Það var niðurstaða dómsins að Akureyrarbær hefði rift ráðningarsamningum slökkviliðsmannanna fyrirvaralaust. Akureyrarkaupstaður var dæmdur til að greiða þeim skaðabætur, en samtals nam upphæðin fimm milljónum króna.
Auk þess var bærinn dæmdur til að greiða 2,1 milljón króna í málskostnað.
Í málinu var ágreiningur með mönnunum og Akureyrarbæ um starfslok þeirra hjá Slökkviliði Akureyrar í byrjun desember 2012 eftir að hafa farið í eins árs launalaust leyfi í desember 2011 og ráðið sig til starfa hjá öðru fyrirtæki á meðan. Eftir að viðræður um starfslok runnu út í sandinn mættu mennirnir því aftur til vinnu hjá slökkviliðinu en þá hafnaði Akureyrarbær vinnuframlagi þeirra.
Málið tengist deilum sem hafa staðið yfir lengi innan slökkviliðsins og beindust m.a. að samskiptum þeirra við fyrrverandi slökkviliðsstjóra, en mennirnir sökuðu hann um einelti. Annar mannanna er fyrrverandi aðstoðarslökkvistjóri og hinn fyrrverandi varðstjóri.
Í málinu gerðu mennirnir kröfur um vangoldin laun og laun í uppsagnarfresti. Auk þess kröfðust þeir skaðabóta, þ.e. tjóns vegna tekjutaps, miska vegna starfsloka, en jafnframt gerðu þeir kröfur um miskabætur vegna eineltis á vinnustað.
Akureyrarbær hafnaði öllum kröfum mannanna og hefur nú ákveðið að áfrýja málinu til Hæstaréttar.