Leitað að 13 ára dreng

Guido Javier Japke Varas fór að heiman frá sér á …
Guido Javier Japke Varas fór að heiman frá sér á Hellu á fimmtudag og hefur ekki skilað sér síðan.

Lögreglan á Hvolsvelli leitar að dreng á fjórtánda ári, Guido Javier Japke Varas. Guido fór að heiman frá sér á Hellu á fimmtudag og hefur ekki skilað sér heim síðan. Vitað er af honum á höfuðborgarsvæðinu í gær.

Guido er um 175 cm á hæð og grannvaxinn. Ekki er vitað hvernig hann er klæddur. Lögreglan á Hvolsvelli biður fólk sem sér hann eða veit um ferðir hans að láta vita í síma 488-4110.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert