Skömmu fyrir tvö í nótt var slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað að Fellaskóla vegna eldsvoða. Í ljós kom að kveikt hafði verið í á nokkrum stöðum á skólalóðinni.
Þegar slökkvilið og lögreglu bar að var búið að slökkva eldinn en kveikt hafði verið í gervigrasi og skrauti víðsvegar um skólalóðina. Ekki er vitað hverjir voru þarna að verki.