Smíðaði flugvélina sjálfur

Bretinn Colin Hales er nú staddur hér á landi, en hann hyggst fljúga í kringum hnöttinn á lítilli heimasmíðaðri flugvél. Hales er flugmaður og flugvélaverkfræðingur og liggur flugvélasmíði því ágætlega fyrir honum. Hann hefur verið hér á landi í nokkra daga þar sem ekki er hægt að fljúga frá landinu í hvaða veðurskilyrðum sem er á lítilli eins manns flugvél. 

Hales er þó ánægður með dvöl sína hér, segist hafa flogið yfir fallega staði og mætt mikilli gestrisni hjá meðlimum flugklúbbsins Geirfugls sem og öðrum landsmönnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert