Veiða krabba og selja á matarvagni

Félagarnir Davíð Freyr Jónsson og Daði Janusson veiða grjótkrabba í Faxaflóa, gera úr honum krabbaborgara og selja á matarvagni við Reykjavíkurhöfn.

Rekstur matarvagnsins Walk the Plank hófst fyrir um mánuði og segir Davíð aðsókn ferðamanna á staðinn hafa verið mikla. Matarvagnar hafa sprottið upp víða um borgina undanfarið, en Davíð segir slíkan rekstur ganga ágætlega í íslenskri veðráttu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert