Vopnað rán í Pétursbúð

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Vopnað rán var framið í matvöruversluninni Pétursbúð, sem stendur við Ránargötu í Vesturbæ Reykjavíkur í kvöld. Samkvæmt heimildum mbl.is réðust tveir menn inn í verslunina vopnaðir barefli og sprautunál. Komust þeir undan með eitthvað af peningum.

Þegar blaðmaður náði tali af starfsmanni Pétursbúðar neitaði hann alfarið að ræða um málið. Ekki náðist í lögreglu höfuðborgarsvæðisins og liggur því ekki fyrir hvort ræningjanna sé enn leitað.

Uppfært klukkan 23.22:

Lögregla höfuðborgarsvæðisins sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna málsins: „2150      var tilkynnt um að tveir menn vopnaðir bareflum hefðu rænt söluturn við Ránargötu.   Skömmu síðar voru tveir ungir menn handteknir grunaðir um verknaðinn.  Þeir eru vistaðir í fangageymslu og er málið í frumrannsókn.  Engan sakaði, líkamlega,  í söluturninum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka