Á þriðja tug manna nýtti veðurblíðuna í dag til þess að keppa í strandrugby í Nauthólsvík. Um var að ræða mót á vegum félagsins Rugby Ísland. Um 50 manns stunda íþróttina hér á landi en hún er í hröðum vexti því fyrir fáeinum árum taldi hópurinn ekki nema örfáa einstaklinga.
Ljósmyndari mbl.is var á staðnum og fangaði spennuna.