Úrkomumet á Norðvesturlandi

Mikil úrkoma hefur verið bæði Norðvestan- og Suðvestanlands í júlí.
Mikil úrkoma hefur verið bæði Norðvestan- og Suðvestanlands í júlí. mbl.is/Kristinn

Vesturland hefur verið ansi blautt það sem af er júlí, og það á við um norðurhluta þess ekki síður en suðurhlutann. Þótt mánuðurinn sé ekki liðinn eru úrkomumet þegar fallin víða norðvestanlands.

Þetta kemur fram á skagfirska fréttavefnum Feyki, í svari við fyrirspurn þeirra til Veðurstofu Íslands. Mest munar um gríðarlega úrkomu fyrstu daga mánaðarins.

Á Bergsstöðum í Skagafirði, Brúsastöðum í Vatnsdal og á Ásbjarnarstöðum á Vatnsnesi er úrkoman nú orðin meiri en nokkurn tíma hefur mælst í júlímánuði öllum.

Á Stafni í Svartárdal, Litlu-Hlíð í Skagafirði og við Skeiðsfossvirkjun í Fljótum hefur úrkoman ekki enn ekki náð mestu mánaðarúrkomu alls í júlí en mögulegt er að svo verði áður en mánuðurinn er allur.

Er þar með slegið úrkomumet frá í fyrra þegar úrkoma á Bergsstöðum í Skagafirði var meiri fyrstu þrjár vikurnar í júlí, eða 56,4 mm, en áður hafði verið í áratugi. Munaði þó ekki miklu, t.d. árið 2001.

Sjá á Feykir.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert