Hinn níu ára gamli Mikael Viðar Ægisson stundar kínversku bardagalistirnar wushu af krafti. Hann byrjaði að æfa hjá Heilsudrekanum fyrir tveimur árum, en honum finnst íþróttin gríðarlega skemmtileg og stefnir á framtíð í henni. Mikael kom nýlega heim af Evrópumeistaramóti í Belgíu þar sem hann keppti í undirgreininni qigong og vann til verðlauna.
Wushu á rætur að rekja til ævafornrar kínverskrar bardagalistar, en Kínverjar stunduðu hana bæði sem sjálfsvörn og leið til þess að styrkja líkama og sál. Í dag á íþróttin ýmsar undirgreinar og er stunduð bæði sem bardagi og sýningarlist.
Vefsíða Wushu-félags Reykjavíkur