Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti í kvöld mynd á Instagramsíðu sinni þar sem segir frá útkalli sem átti sér stað í dag. Var henni sagt að rotta hafi komist á heimili í Vesturbænum og gert sig heimakomna þar.
Þegar lögreglan kom á staðinn og fór á stúfana kom í ljós að rottan reyndist raunar vera lítil mús.