Nóttin var afar erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Alls gista sex manns fangageymslur á Hverfisgötu, þar af fjórir vegna ölvunarvímu. Þá var lögreglan send á bar við Reykjavíkurveg í kringum hálf 3 í nótt þar sem maður hafði verið barinn. Ekki liggja fyrir fleiri upplýsingar um málið að svo stöddu.
Tíu manns voru teknir úr umferðinni í nótt sökum vímu. Sex undir áhrifum fíkniefna, þrír undir áhrifum áfengis og einn undir áhrifum hvoru tveggja.