Sprengjuvél á Reykjavíkurflugvelli

Sprengjuflugvél af gerðinni Avro Lancaster úr seinni heimsstyrjöldinni er nú stödd á Íslandi. Vélin er oft kölluð Vera en nafn sitt dregur hún af einkennisstöfum sínum sem merktir eru á hlið vélarinnar. Vera var smíðuð árið 1945, rétt eftir að heimsstyrjöldinni lauk, og sá því aldrei orrustu.

Vera millilendir hér á ferð sinni frá Kanada til Bretlands, þar sem hún mun fljúga við hlið annarrar Lancaster vélar en þær eru einu flughæfu vélar sinnar gerðar sem eftir eru í heiminum.

Ferðin er flogin til að heiðra minningu áhafnarliða bresku sprengjusveitanna sem létu lífið í síðari heimsstyrjöldinni.

Vélin er hvorki búin súrefnis- né loftþrýstibúnaði svo henni er jafnan flogið í um 9.000 feta hæð. Farþegaþotur fljúga vanalega í um 37.000 feta hæð.

Það er draumur flestra flugáhugamanna að fá að sitja í Lancaster en eins og fjallað var um í frétt mbl.is eru sumir tilbúnir til að greiða háar fjárhæðir fyrir flugferð í slíkri vél.

Margir flugáhugamenn gerðu sér ferð niður á Reykjavíkurflugvöll til að bera vélina augum en slíkt tækifæri gefst ekki á hverjum degi

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá viðtal við Don Schofield, yfirflugmann Lancastervélarinnar. 

Lancaster sprengjuvél lendir á Reyjavíkurflugvelli.
Lancaster sprengjuvél lendir á Reyjavíkurflugvelli. Þórður Arnar Þórðarson
Lancaster sprengjuvél lendir á Reyjavíkurflugvelli.
Lancaster sprengjuvél lendir á Reyjavíkurflugvelli. Þórður Arnar Þórðarson
Lancaster sprengjuvél lendir á Reyjavíkurflugvelli.
Lancaster sprengjuvél lendir á Reyjavíkurflugvelli. Þórður Arnar Þórðarson
Vélin er oft kölluð Vera, en það nafn dregur hún …
Vélin er oft kölluð Vera, en það nafn dregur hún af einkennisstöfum sínum VR-A Þórður Arnar Þórðarson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert