Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað á Frakkastíg í Reykjavík rétt fyrir klukkan 19:30, laugardaginn þann 9. ágúst.
Ráðist var á karlmann á fertugsaldri og hann stunginn með hníf.
Eru þeir sem kunna að hafa orðið vitni að árásinni eða geta veitt upplýsingar um málið, beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000. Þá má einnig koma skilaboðum til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gegnum Facebook-síðu hennar.