Gunnar Nelson vinsæll í Stokkhólmi

Gunnar var vinsæll á meðal aðdáenda UFC í Stokkhólmi í …
Gunnar var vinsæll á meðal aðdáenda UFC í Stokkhólmi í dag. Mynd/UFC

Gunnar Nelson var vinsæll á meðal sænskra aðdáenda UFC á Sergels-torginu í Stokkhólmi í dag. UFC var með leik þar sem þeir sem voru fyrstir til þess að finna Gunnar á torginu, fengu fríann miða á UFC keppnina sem fram fer í Stokkhólmi þann 4. október næstkomandi. 

Er Gunnar nú staddur í Stokkhólmi til þess að kynna keppnina og verður hann aðalstjarna kvöldsins þann 4. október. Hann heldur svo til Dublinar þar sem hann mun dveljast við æfingar, áður en hann undirbýr sig fyrir bardagann heima í Mjölni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert