Bandaríski tónlistarmaðurinn Justin Timberlake hefur verið hófsamur í óskum fyrir stórtónleika sína í Kórnum á sunnudagskvöld, að sögn tónleikahaldara.
Undirbúningur fyrir tónleikana er nú í fullum gangi en þeir eru líklega þeir umfangsmestu sem haldnir hafa verið hér á landi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.