Rúmlega 10.000 hlaupa á laugardag

Frá Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra.
Frá Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra. mbl.is/Árni Sæberg

Rúmlega 10 þúsund þátttakendur eru skráðir til leiks í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fer fram á laugardag. Eins og undanfarin ár eru flestir skráðir í 10 km hlaupið, eða rúmur helmingur. Yfir eitt þúsund hyggjast hlaupa heilt maraþon. 

Fram kemur í tilkynningu, að skráning í maraþonið sé í fullum gangi á vefnum marathon.is. Nú þegar hafa 10.467 skráð sig til þátttöku sem eru 8% fleiri en á sama tíma í fyrra.

10 km hlaupið er vinsælasta vegalengdin líkt og undanfarin ár en rúmlega helmingur skráða þátttakenda stefnir á að hlaupa þá vegalengd eða 5.431. Næst flestir hafa skráð sig í hálft maraþon, 2.246 hlauparar, og 1.064 hafa skráð sig í maraþon. Einnig er hægt að velja um að skrá sig í 3 km skemmtiskokk, Latabæjarhlaup og boðhlaup þar sem 2-4 skipta á milli sín maraþonvegalengdinni. Allir aldurshópar og getustig ættu því að geta fundið vegalengd við þeirra hæfi í hlaupinu næsta laugardag.

Skráðir erlendir þátttakendur eru nú 2.0163 og af 60 mismunandi þjóðernum. Flestir erlendu þátttakendanna koma frá Bandaríkjunum, 490 manns og næst flestir frá Bretlandi, 368. Þá eru skráðir Þjóðverjar 239 talsins, Kanadabúar 200 og Norðmenn 114.

Rúmlega 42 milljónir hafa safnast

Áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka fer fram á vefnum hlaupastyrkur.is<http://www.hlaupastyrkur.is/>. 3734 hlauparar eru að safna áheitum á vefnum og hafa þegar safnast rúmlega 42 milljónir til góðra málefna en það er 12% hærri upphæð en búið var að safna á sama tíma í fyrra. Allir skráðir þátttakendur geta safnað áheitum til styrktar góðum málefnum á hlaupastyrkur.is<http://www.hlaupastyrkur.is/> en hægt er að velja á milli 167 mismunandi góðgerðafélaga.

 Netskráningu í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka á marathon.is lýkur fimmtudaginn 21.ágúst kl.13. Einnig verður hægt að skrá sig í hlaupið á skráningarhátíð í Laugardalshöll en þá er þátttökugjaldið hærra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert