Einungis erlendir ökuníðingar

mbl.is/Eggert

Sjö voru teknir fyrir hraðakstur á milli Víkur í Mýrdal og Kirkjubæjarklausturs í dag, en sá sem hraðast ók var á 132 km/klst.

Allir brotlegu ökumennirnir eru erlendir ferðamenn, sem telst nokkuð óvenjulegt að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Einnig bar nokkuð á utanvegaakstri í umdæminu í dag, en lögreglan brýnir fyrir ferðamönnum að láta af þeim ósið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert