Miklar umferðartafir eru nú á Miklubraut til austurs vegna þriggja bíla áreksturs á Miklubraut við Skeiðarvog.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er ekki vitað um nein slys á fólki, en umferð gengur hægt allt frá Skaftahlíð að Skeifunni að sögn vegfarenda. Lögregluþjónar eru á vettvangi.