Samkvæmt tilkynningu frá Strætó bs. mun fyrirtækið, í samstarfi við Kópavogsbæ, sjá um að ferja tónleikagesti Justin Timberlake til og frá Kórnum í Kópavogi á sunnudaginn.
Miðarnir á tónleikana gilda sem aðgangseyrir í alla vagna Strætó bs. á tónleikadag frá klukkan 14.
Aksturinn í Kórinn hefst klukkan 16 frá Mjódd, Smáralind og Ögurhvarfi í Kórinn og að loknum tónleikum mun Strætó sjá um að aka gestum til baka. Tónleikagestir eru beðnir um að leggja á fyrrgreindum stöðum og taka strætó á tónleikana.
Vagnar á leið 2 og 28 munu aka sínar hefðbundnu akstursleiðir og verður hleypt í gegnum mannaðar lokanir sem verða á svæðinu. Samkvæmt tilkynningu má búast við einhverjum töfum þegar nær dregur tónleikatímanum og eftir þá, annað á ekki að trufla akstur hefðbundinna leiða.