Umferð mun aukast vegna skólabyrjunar

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu minnir ökumenn á að vegna skólabyrjunar í vikunni megi búast við stóraukinni bílaumferð að morgni til og síðdegis.

„Lögregla hvetur ökumenn til að gera ráð fyrir þessu í tímaáætlunum sínum. Lögregla mun á sama tíma auka sýnilegt eftirlit á stofnæðum höfuðborgarsvæðisins sérstaklega, en einnig í íbúðahverfum í nágrenni við grunnskóla. Markmiðið er sem fyrr að minna ökumenn á að fara varlega í umferðinni.“ Þetta segir á facebooksíðu lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert