Töluverður viðbúnaður var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um ellefuleytið er bifreið fór útaf á leið af Ártúnsbrekku og inn á Sæbraut. Bifreiðin hafnaði inni í trjágróðri og þurfti slökkviliðið að fara í skógarhögg til þess að komast að bifreiðinni.
Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku en ekki er talið að meiðsl hans séu alvarleg.