Eldgos eða ekki eldgos?

Bárðarbunga og hálendið norðan Vatnajökuls.
Bárðarbunga og hálendið norðan Vatnajökuls. Kort/Landmælingar Íslands

Vísindamenn sem eru í TF-Sif núna sjá engin merki um gos á þessari stundu. Þetta kemur fram á Facebook síðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og Twitterfærslu.

Það virðist því enn vera óljóst hvort það er gos hafið undir Dyngjujökli. Blaðamenn mbl.is fylgjast áfram grannt með og setja inn fréttir af eldgosinu eða ekki eldgosinu jafn óðum og þær berast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert