Skjálfti upp á 5,3 í Bárðarbungu

Starfsmenn Veðurstofunnar við jarðskjálftamæli við Bárðarbungu í gær.
Starfsmenn Veðurstofunnar við jarðskjálftamæli við Bárðarbungu í gær. mbl.is/Árni Sæberg

Veðurstofa Íslands segir að jarðskjálfti sem mældist 5,3 stig hafi orðið í öskju Bárðarbungu á fimm km dýpi kl 00:09 í kvöld. Þetta er stærsti skjálfti sem hefur mælst síðan jarðhræringarnar hófust í eldstöðinni fyrir viku. 

Fram kemur í tilkynningu að EMSC í Evrópu og GEOFON í Potsdam í Þýskalandi hafi staðfest mælinguna. 

Tekið er fram að órói hafi ekki aukist í kjölfar skjálftans. Veðurstofa Íslands heldur áfram að fylgjast grannt með ástandinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert