Ástand fjarskipta er víða óviðunandi í Borgarbyggð og á það bæði við um net- og farsímasamband.
Eru íbúar sveitarfélagsins orðnir langþreyttir á ástandinu, sem bitnað hefur m.a. á atvinnulífi á svæðinu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Kemur þetta fram í fundargerð bæjarráðs Borgarbyggðar. Segir þar enn fremur að mikilvægt sé fyrir þá fjölmörgu ferðamenn sem sæki sveitarfélagið heim að geta treyst á gott fjarskiptasamband.