Sigmundur tekinn við dómsmálum

Sigmundur Davíð og Hanna Birna á fundinum í ráðuneytinu í …
Sigmundur Davíð og Hanna Birna á fundinum í ráðuneytinu í dag. mynd/innanríkisráðuneytið

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra tók í dag við sem nýr dómsmálaráðherra. Af því tilefni heimsótti Sigmundur ráðuneytið í dag.

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra kynnti nýjan ráðherra fyrir starfsmönnum og kvaðst hann hlakka til samstarfsins, að því er segir á vef innanríkisráðuneytisins.

Ríkisstjórnin ákvað í gær í framhaldi af ósk innanríkisráðherra að færa tímabundið málefni dómstóla, lögreglu og ákæruvalds undan ábyrgðarsviði innanríkisráðherra með því að setja á fót nýtt embætti dómsmálaráðherra. Var forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta breytt samkvæmt því.

Sigmundur Davíð sagði verða koma í ljós hvernig hann muni skipta tíma sínum milli verkefna í forsætisráðuneyti og innanríkisráðuneyti en starfsfólk ráðuneytisins sem sinnir málefnum er falla undir dómsmálaráðherra munu áfram hafa aðsetur í ráðuneytinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert