Afrísk svínapest komin til Evrópu

Útbreiðsla svínapestarinnar.
Útbreiðsla svínapestarinnar.

Afar mikilvægt er að Íslendingar sem ferðast til landa þar sem afrísk svínapest hefur breiðst út hafi sjúkdóminn í huga og taki alls ekki með sér hrátt eða illa hitameðhöndlað kjöt hingað til lands. Um er að ræða alvarlegan sjúkdóm í svínum, sem í flestum tilvikum veldur dauða.

Matvælastofnun segir að svínapestin sé að brjóta sér leið úr austri til æ fleiri Evrópulanda. Um sé að ræða alvarlegan sjúkdóm í svínum, sem í flestum tilvikum veldur dauða. Sjúkdómurinn berst hins vegar ekki í önnur dýr né fólk. „Veiran sem veldur sjúkdómnum getur m.a. borist með sýktum svínum og sæði, hráu kjöti af sýktum dýrum, sem og farartækjum, búnaði, fatnaði o.fl. sem mengast hafa af veirunni. Smitdreifing til nýrra landa er oftast rakin til matvæla og lifandi svína.“

Sjúkdómurinn hefur verið til staðar í Rússlandi frá árinu 2007 og er nú landlægur þar. Georgía, Armenía, Azerbaídsjan, Úkraína og Hvíta-Rússland hafa jafnframt öll tilkynnt um tilfelli á undanförnum árum. Á þessu ári hafa svo tilfelli greinst í Lettlandi, Litháen og Póllandi, sem staðfest hefur verið að eru af völdum sama stofns veirunnar og er á ferðinni í Rússlandi og Hvíta-Rússlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert