Á morgun, föstudaginn 29. ágúst frá kl. 06:00 til 14:00 eru fyrirhugaðar framkvæmdir, fræsun og malbikun, á Miklubraut í Reykjavík.
Unnið verður á Miklubraut til austurs, í akstursátt frá miðborg Reykjavíkur í átt að Elliðaám, frá Grensásvegi fram yfir frárein að Skeiðarvogi.
Rampur að Skeiðarvogi lokast á meðan. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar.