Í ofsaakstri á bifhjóli með farþega

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Laust eftir miðnætti í nótt var 50 ára karlmaður á bifhjóli stöðvaður á 121 km hraða á Hafnarfjarðarvegi við Garðabæ. Var maðurinn með þrettán ára farþega á hjólinu. Á veginum er 80 km hámarkshraði á klst.

Rétt fyrir kl. 1 í nótt barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um slagsmál á Hverfisgötu. Fjórir voru handteknir og færðir á lögreglustöð við Hverfisgötu. Einn vistaður sökum ástands en hin þrjú fengu að fara að loknu viðtali.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka