Rauðspretta með íslensku grænkáli, heimareykt lambakjöt og crème brûlée er meðal þess sem Úlfur Uggason yfirkokkur á Center Hotels bauð nánustu fjölskyldu upp á í matarboði á dögunum.
Íslenskt hráefni var þar í aðalhlutverki en borðið skreytti móðir Úlfs, Margrét Guðnadóttir listakona, en forrétturinn var meðal annars borinn fram á náttúrusteinum.
Uppskriftirnar má nálgast í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem kemur út um helgina.