Það er búið að vera töluvert að gera hjá starfsfólki Neyðarlínunnar í dag en fljótlega reiknað hafa komið inn 324 mál á dagvaktinni í dag, að því er segir í færslu á facebooksíðu Neyðarlínunnar.
Stór hluti af þessu er óveðurs- og vatnstjónamál sem slökkvilið og björgunarsveitir hafa sinnt. Það hefur því verið nóg að gera hjá viðbragðsaðilum í dag.