Rob Green frá Háskólanum í Cambridge tók myndskeið af eldgosinu í Holuhrauni. BBC birti myndbandið, en frétt fjölmiðilsins um eldgosið hefur verið mikið lesin.
Erlendir fjölmiðlar víða um heim hafa fjallað mikið um eldgosið í Holuhrauni. Í fréttunum er tekið fram að gosið hafi engin áhrif á flugumferð.
Eldgosið var efsta frétt á VG í Noregi.
Guardian í Bretlandi fjallaði um eldgosið í dag.