Sigmundur á fundi hjá almannavörnum

Öskjusig í jöklinum veldur jarðvísindamönnum og Almannavörnum nokkrum áhyggjum.
Öskjusig í jöklinum veldur jarðvísindamönnum og Almannavörnum nokkrum áhyggjum. Ljósmynd/Guðmundur K. Sigurdórsson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, situr nú á fundi með stjórnendum almannavarna. Þar fær hann að heyra stöðu mála í Bárðarbungu en öskjusig í jöklinum veldur jarðvísindamönnum og almannavörnum nokkrum áhyggjum.

Að sögn Rögnvaldar Ólafssonar, verkefnastjóra almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, er fundurinn bæði reglulegur stöðufundur vegna jarðhræringa sem þessa en einnig til að greina frá áhyggjum vegna sigsins.

Á fundinum verður farið yfir nokkrar sviðsmyndir sem teiknaðar hafa verið upp vegna umbrotanna.

Feta ókunna stigu

„Sigið í Bárðarbungu er veru­legt áhyggju­efni og fet­um við nú ókunna stigu,“ seg­ir Magnús Tumi Guðmunds­son, jarðeðlis­fræðing­ur, í samtali við Morgunblaðið í dag og bend­ir á að askj­an í Bárðarbungu hafi nú sigið hátt í 20 metra.

„Þessi askja er full af ís og ef gýs inn­an henn­ar þá bræðir gosið aðallega ís sem get­ur valdið veru­leg­um jök­ul­hlaup­um. Ef gosið nær svo í gegn get­ur orðið veru­legt sprengigos,“ seg­ir hann og bend­ir á að sú at­b­urðarás sem nú er í gangi þurfi ekki endi­lega að leiða til þessa.

Spurður út í lík­ur þess að at­b­urðarás­in stig­magn­ist svar­ar Magnús Tumi í Morg­un­blaðion í  dag: „Vegna þess að askj­an er að síga þá eru miklu meiri lík­ur á því að at­b­urðarás­in magn­ist frá því sem nú er en ef ekki væri öskju­sig. Ef sigið verður veru­legt og virkni áfram­hald­andi í öskj­unni gæti Bárðarbunga orðið upp­spretta jök­ul­hlaupa á kom­andi árum og ára­tug­um.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert