Ekki dregur úr gosinu í Holuhrauni. Samkvæmt athugunum á vettvangi er gosvirkni svipuð og undanfarna daga. Hraun rennur áfram í farveg Jökulsár á Fjöllum, áin flæmist til austurs undan hrauninu en árfarvegurinn þrengist. Hraunið nær 5-10 m upp yfir farveg árinnar. Ekki er sprengivirkni þar sem hraunið rennur í ána en gufubólstrar stíga upp.
Í flugi vísindamanna yfir svæðið í gær sáust ekki nýjar breytingar á yfirborði jökulsins. Þetta kom fram á fundi vísindamannaráðs Almannavarna í morgun.
Varað við mengun á Austurlandi síðdegis
Spár gefa til kynna að hár styrkur brennisteinsgass (SO2) og annarra gosefna gæti orðið á norðanverðum Austfjörðum, Fljótsdal, Héraði, Jökuldal og Vopnafirði. Spáin gefur til kynna að styrkur geti orðið mestur á Héraði seinnipartinn. Svæði með háum styrk gæti orðið stærra.
Umhverfisstofnun stefnir að því að setja upp mælitæki á Akureyri og Suðurlandi. Taka verður tillit til landfræðilegra aðstæðna á hverjum stað við mat loftgæða. Ef fólk finnur fyrir óþægindum er mælt með að halda sig innandyra, loka gluggum og slökkva á loftræstingu. Hægt er að fylgjast með mælingum á loftgæðum á síðunni loftgæði.is. Veðurstofan birtir textaspár á vef sínum og viðvaranir eftir því sem aðstæður breytast.
Ekki óhætt að nálgast gossvæðið án gasmæla og gasgríma
Mikið gasstreymi er áfram í og kringum eldstöðina. Bráð lífshætta stafar af gasinu og ekki er óhætt að nálgast svæðið án gasmæla og gasgríma. Við gosstöðvarnar má búast við sífelldum staðbundnum breytingum á vindátt, vegna hitauppstreymis, sem gera aðstæður þar mjög hættulegar. Allir vísindamenn á vettvangi hafa gasmæla á sér til þess að tryggja öryggi þeirra við störf.
50 skjálftar frá miðnætti
Jarðskjálftavirkni í öskju Bárðarbungu breytist lítið frá degi til dags. Skjálftarnir dreifast einkum um norður- og suðausturhuta öskjumisgengisins. Dregið hefur enn úr skjálftum við norðurenda kvikugangsins. Rúmlega 50 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Dregið hefur úr óróa.
GPS-mælingar:
Þrír möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:
Frá Veðurstofu Íslands:
Litakóði fyrir flug er áfram appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og kóði fyrir Öskju er grænn.