Verulegt áhyggjuefni fyrir stúdenta

mbl.is/Sigurður Bogi

Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, hefur sent frá sér ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að endurskoða fjárveitingar í þágu menntunar á háskólastigi í landinu. Frumvarp ríkisstjórnarinnar til fjárlaga fyrir komandi ár sé verulegt áhyggjuefni fyrir háskólastúdenta. Þrátt fyrir 4.1% hækkun á framlögum til Háskóla Íslands frá því í fyrra sé enn ekki greitt með fjölda nemenda við háskólann.

„Fjöldi þeirra nemenda sem ríkið greiðir ekki með hefur aukist svo nú er ekki greitt með 500 nemendum. Það er óviðunandi að enn sé vegið að Háskóla Íslands og að hann skuli sæta niðurskurði af hendi stjórnvalda enn eitt árið í röð. Fjárveitingar til menntamála hafa verið skornar niður ítrekað síðustu ár og Háskóli Íslands hefur ekki farið varhluta af þeim fjárhagsþrengingum. Nú er komið að þolmörkum.“

Ljóst sé að til þess að Háskóli Íslands geti sinnt sínu lögbundna hlutverki sem ríkisháskóli sem bjóði öllum alþjóðlega samkeppnishæft háskólanám þurfi stjórnvöld að setja menntamál í forgang við úthlutun fjármuna úr ríkiskassanum. Auk þess sé það lágmarksskilyrði að hækkun skrásetningargjalda við HÍ skili sér til skólans sem sé aðeins að litlu leyti raunin í dag.

„Hækkun virðisaukaskatts á bækur og mat mun hafa gríðarleg áhrif fyrir háskólastúdenta. Það er ósáttænalegt, og niðurlægjandi, að bókaskattur skuli nærri því tvöfaldast, skattur sem kemur hvað verst niður á starfsmönnum menntastofnana og samfélaginu í heild. Stúdentar eru lágtekjuhópur og verðhækkun á nauðsynjavörum er óhæf.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert